Komið var á fót vettvangi um frjálsa för að undirlagi norrænu forsætisráðherranna og hefur hann umboð til þess «að beita öllum tiltækum ráðum» til að fjarlægja viðskiptahindranir á svæðinu.
Vettvangnum stýrir tilnefndur formaður ásamt framkvæmdastjóra Norrænu ráðherranefndarinnar. Starf hans byggist á jákvæðum viðræðum við pólitískar stofnanir og framkvæmdavald ríkjanna með það fyrir augum að einfalda líf norrænna einstaklinga og fyrirtækja.
Vettvangurinn er undir stjórn Ole Norrback sem er fyrrverandi diplómat og finnskur samstarfsráðherra um norræn málefni.
Nordic Innovation ber ábyrgð á því að tilkynna vettvangnum um og sundurgreina viðskiptahindranir á varningi, þjónustu og fjármagni.