Norrænu hagkerfin eru opin og hlutfallslega lítil og hafa löngum byggst á viðskiptum.
Svæði okkar hefur mikla hagsmuni af viðskiptafrelsi með vörur og þjónustu á erlenda markaði. Þar af leiðandi hvetur Nordic Innovation til þess að gerðir séu alþjóðlegir samningar, reglur settar og komið á stöðlum sem stuðla að opnun markaða fyrir vörur og þjónustu.
Það hefur löngum verið á dagskrá á Norðurlöndum að fjarlægja viðskiptahindranir og koma á opnu viðskiptaskipulagi. Norðurlönd eru hluti af innra markaði ESB og samstarf Norðurlanda á sviði löggjafar hefur breyst úr því að samræma lög í samstarf um að hrinda innri markaðstilskipunum ESB í framkvæmd. Séu tilskipanir og reglugerðir ESB framkvæmdar á mismunandi vegu eykur það hættu á því að nýjar viðskiptahindranir komi til. Það er þess vegna lykilþáttur í framtíðarsýn Nordic Innovation um Norðurlönd án viðskiptahindrana að vinna að aukinni samræmingu við framkvæmd löggjafar ESB.