Top flakk

Prenta

Hvað er nýsköpun?

Kjarni nýsköpunar er endurnýjun.
  • Published 15.3.2011

Eigi endurnýjun að geta átt sér stað er það bæði fólki og fyrirtækjum nauðsyn að breyta ákvarðanaferli sínu, taka ákvörðun um að standa á nýjan hátt að málum og velja á annan hátt en hefðin segir til um.

 

OECD skilgreinir nýsköpun sem «nýjar afurðir, viðskiptaferli og skipulagslegar breytingar sem eru virðisaukandi og styrkja félagslega velferð.»  Goldman Sacks notar færri orð: «nýsköpun er fersk og virðisaukandi hugsun.» Nordic Innovation miðstöðin vinnur í samræmi við eftirfarandi skilgreiningu á nýsköpun: «Nýsköpun er nýtt eða endurbætt ferli, þjónusta, afurð eða fyrirkomulag sem skapar fjárhagslegt verðmæti eða annað almennt verðmæti. Nýsköpun er mikilvæg, jafnt í einkageiranum sem þeim opinbera.»

 

Nýsköpun rekur rætur sínar víða.  Algengasta uppspretta nýsköpunar eru nýjar kröfur viðskiptavina, lýðfræðilegar breytingar, ný tækni, ný fyrirtæki og viðskiptalíkön og frumkvöðlar.  Nýsköpun getur verið róttæk, til dæmis þannig að nýmælið orsaki grundvallarbreytingar á því hvernig staðið er að verki í heilli atvinnugrein. iPhone frá Apple og Android hugbúnaðarverkvangurinn eru hvoru tveggja róttæk nýsköpun.

 

Nýsköpun getur verið stigvaxandi, það er að nýmælið snýst um litlar en samfelldar úrbætur. Bílaframleiðslukerfi Toyota er heimsþekkt fyrir stigvaxandi samfellda nýsköpun sína.  Á síðari árum hefur hugtakið viðskiptanýsköpun (business model innovation) rutt sér til rúms. Með viðskiptanýsköpun er átt við það að fyrirtæki geti staðið að nýsköpun varðandi vöru eða þjónustu - HVAÐ, nýsköpun varðandi viðskiptavini og reynslu þeirra - HVER, nýsköpun á sviði starfsemi sinnar - HVERNIG, og loks nýsköpun í skipulagi á sölu og samstarfi og samvinnu við önnur fyrirtæki og samtök í virðiskeðjunni.

Hlut

Prenta
0 athugasemdir
Skildu eftir athugasemd