Norræna ráðherranefndin vill tryggja samfellu og stuðla að góðum tengslum Norðurlanda og Kanada og fjármagnar því samstarfsverkefni sem NEF (Nordic Energy Research) og Nordic Innovation Centre miðstöðin stýra.
NEF og Nordic Innovation Centre miðstöðin ætla á árinu 2011 að þróa áfram starfsemi af ýmsu tagi með það að markmiði að örva samskipti Norðurlanda og Kanada á sviði sjálfbærrar orku og nýsköpunar. Norrænu stofnanirnar tvær grípa með þessum verkefnum til aðgerða til þess að varpa ljósi á þá ónýttu möguleika sem liggja í frekari tengslum Norðurlanda og Kanada á sviði sjálfbærrar orku og nýsköpunar.
Aðalmarkmiðið er að koma á fót sívirkum samstarfsnetum og -fyrirkomulagi á milli heimshlutanna tveggja og örva gagnkvæma miðlun þekkingar og tæknikunnáttu.
Markmið samstarfsins
- Að deila sérfræðikunnáttu: Að miðla sjónarmiðum og tillögum sérfræðinga við til dæmis umsóknir um fjármögnun og rannsóknaskýrslur
- Að deila þekkingu: Þegar haldnar eru til dæmis málstofur eða námskeið um verkefni sem sjónum er sérstaklega beint að ætti að bjóða fyrirlesurum/þátttakendum frá báðum svæðum (þetta má líta á sem áfanga í átt til þess að koma upp varanlegum samstarfsnetum og þróa samstarfið frekar)
- Að deila nýsköpun: Nýsköpunarmiðstöðvar - samstarf vísinda- og nýsköpunargarða og að móta gagnkvæm skipti
Mikilvægasta verkefni vorsins er að þróa og halda norræna-kanadíska ráðstefnu í Torontó í mars: CanNord 2011.